Skeggjastaðakirkja er í Skeggjastaða-prestakalli í Múlaprófastsdæmi.
eru bær, kirkjustaður og prestssetur við Bakkafjörð á Langa-nesströnd. Kirkjan, sem nú stendur, er úr timbri, byggð 1845, og því einhver elzta kirkja Austurlands. Hún tekur u.þ.b. 100 manns í sæti.
Þakið er úr timbri, rennisúð að utan en skarsúð að innan, póstaþil er inni. Það var enginn turn á kirkjunni upphaflega, en hann ásamt viðbyggingu bættist við, þegar hún var tekin til gagngerðrar viðgerðar 1961-62. Í viðbyggingunni er forkirkja og skrúðhús. Kirkjunni var lyft og hún stendur nú á steyptum grunni. Gréta og Jón Björnsson skreyttu hana og máluðu. Prédikunarstóllinn er danskur, líklega frá fyrri hluta 18. aldar. O. Knippel málaði altaristöfluna 1857.