Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Siglufjarðarkirkja

Siglufjarðarkirkja er í Siglufjarðarprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Kirkja hefur verið á Siglufirði  1614, en var áður á Siglunesi. Steinsteypukirkjan, sem nú stendur, var byggð 1932. Allmikið húsrými er á kirkjulofti og þar var gagnfræðaskóli Siglufjarðar starfræktur um alllangan tíma. Safnaðarheimili var vígt á loftinu árið 1982. Arne Finsen, arkitekt, teiknaði kirkjuna en Einar Jóhannsson og Jón Guðmundsson voru byggingameistarar.

Sverre Tynes var yfirsmiður. Steint gler var sett í glugga kirkjunnar 1974. María Katzgrau teiknaði þá en Oidtmannbræður í Þýzkalandi gerðu þá. Meðal góðra gripa kirkjunnar má nefna altaristöfluna frá 1726 (síðasta kvöldmáltíðin) og aðra frá 1903, sem sýnir Krist í grasagarðinum eftir Anker Lund. Þriðja altaristaflan með mynd af Kristi, þar sem hann birtist sjómönnum í hafsnauð, er eftir Gunnlaug Blöndal. Skírnarsárinn er eftir Ríkharð Jónsson.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )