Siglufjarðarkirkja er í Siglufjarðarprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Kirkja hefur verið á Siglufirði 1614, en var áður á Siglunesi. Steinsteypukirkjan, sem nú stendur, var byggð 1932. Allmikið húsrými er á kirkjulofti og þar var gagnfræðaskóli Siglufjarðar starfræktur um alllangan tíma. Safnaðarheimili var vígt á loftinu árið 1982. Arne Finsen, arkitekt, teiknaði kirkjuna en Einar Jóhannsson og Jón Guðmundsson voru byggingameistarar.
Sverre Tynes var yfirsmiður. Steint gler var sett í glugga kirkjunnar 1974. María Katzgrau teiknaði þá en Oidtmannbræður í Þýzkalandi gerðu þá. Meðal góðra gripa kirkjunnar má nefna altaristöfluna frá 1726 (síðasta kvöldmáltíðin) og aðra frá 1903, sem sýnir Krist í grasagarðinum eftir Anker Lund. Þriðja altaristaflan með mynd af Kristi, þar sem hann birtist sjómönnum í hafsnauð, er eftir Gunnlaug Blöndal. Skírnarsárinn er eftir Ríkharð Jónsson.