Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Setbergskirkja

Setbergskirkja er í Setbergsprestakalli í Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi. Hún var byggð 1892 af  Jónssyni snikkara úr Stykkishólmi. en í henni er að finna muni úr eldri kirkjum. Þetta er lítil og snotur, turnlaus kirkja úr timbri Hún var helguð heilögum krossi í katólskri tíð.

Á Setbergi hefur verið kirkja frá því á 12 öld. Meðal merkra klerka, sem sátu staðinn, var Steinn Jónsson (1660-1739), sem varð biskup á Hólum 1711. Hann lét prenta alla biblíuna á Hólum 1728 í þriðja skiptið hérlendis. Þessi útgáfa var kennd við hann. Áður höfðu komið út Guðbrandsbiblía 1584 og Þorláksbiblía 1644.

Séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal, sem ræktaði líklega fyrstur manna kartöflur hérlendis, var prestur á Setbergi í nokkur ár og dvaldi þar hjá eftirmanni sínum, Birni Þorgrímsyni (1750-1866), sem samdi æviminningar hans, til dauðadags. Margir aðrir merkir prestar sátu staðinn síðar.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )