Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Sauðanesvatn

saudaneslon

Sauðanesvatn er í Sauðaneshreppi í N.-Þingeyjarsýslu. Það er 0,18 km², 2-3 m djúpt og í 3 m hæð yfir   sjó. Gunnlaugsá rennur í það og úr því Litliós út í sjó. Gott er að komast að vatninu, því það er við bæjarvegginn á stórbýlinu Sauðanesi. Flugvöllur er skammt norðan þess. Bleikjan og urriðinn úr vatninu er mjög góður fiskur og sjógenginn. Stangafjöldi er ekki takmarkaður. Ekki er vitað til að netaveiði sé stunduð í vatninu. Vegalengdin  er 8 km frá Þórshöfn.

Myndasafn

Í grennd

Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …
Þórshöfn
Þórshöfn á Langanesi fékk, eins og Raufarhöfn, löggildingu sem verzlunarstaður árið 1836. Gott skipalægi er þar frá náttúrunnar hendi og byggist atvin…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )