Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Sauðaneslón

Sauðaneslón er í Sauðaneshreppi í N.-Þingeyjarsýslu. það er 1,2 km², grunnt og í 3 m hæ yfir sjó. Lónsá   fellur í það en útfallið er Sauðanesós. Vegurinn liggur á sjávarkambinum meðfram lóninu endilöngu. Það er fullt af fiski, sjóbleikju, sjóbirtingi og urriða. Allt vænn fiskur. Sauðanes var fyrrum eitt eftirsóttasta prestsetur landsins vegna ýmissa hlunninda, dúntekju, reka og silungsveiði. Stangafjöldi er ekki takmarkaður í vatninu. Netaveiði hefur verið stunduð þar frá ómunatíð.

Vegalengdin frá Reykjavík er 620 km og 9 km frá Þórshöfn.

 

Myndasafn

Í grennd

Veiði Austurland
Stangveiði á Austurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Austurlandi …
Veiði Norðurland
Stangveiði á Norðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Norðurlandi vestra …
Þórshöfn
Þórshöfn á Langanesi fékk, eins og Raufarhöfn, löggildingu sem verzlunarstaður árið 1836. Gott skipalægi er þar frá náttúrunnar hendi og byggist atvin…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )