Sauðaneslón er í Sauðaneshreppi í N.-Þingeyjarsýslu. það er 1,2 km², grunnt og í 3 m hæ yfir sjó. Lónsá fellur í það en útfallið er Sauðanesós. Vegurinn liggur á sjávarkambinum meðfram lóninu endilöngu. Það er fullt af fiski, sjóbleikju, sjóbirtingi og urriða. Allt vænn fiskur. Sauðanes var fyrrum eitt eftirsóttasta prestsetur landsins vegna ýmissa hlunninda, dúntekju, reka og silungsveiði. Stangafjöldi er ekki takmarkaður í vatninu. Netaveiði hefur verið stunduð þar frá ómunatíð.
Vegalengdin frá Reykjavík er 620 km og 9 km frá Þórshöfn.