Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Rifgirðingar

Rifgirðingar eru fyrir mynni Hvammsfjarðar og bera mörg nöfn eyja og sérgreindra eyjaklasa. Sagt er, að   þar hafi ekki verið byggð til forna, en Kjóey og Gautsey (Gussey) hafi skipt með sér nytjum þeirra til helminga þar til byggð hófst þar undir nafni Rifgirðinga. Bærinn stóð var við botn Skjaldarvíkur vestarlega á heimaeyjunni. Í Rifgirðingum var stundum tví- og þríbýlt. Vatnsból voru á nokkrum stöðum og stundum varð vatnið salt.

Árið 1702 bjuggu 11 manns í Rifgirðingum með 9 nautgripi og 50 fjár. Sextíu árum síðar var mannfjöldinn 18 manns á þremur býlum. Árið 1801 voru 13 manns heimilisfastir hjá bóndanum, Eiríki Sigurðssyni. Sonur hans varð þekktur sem Sigurður Breiðfjörð skáld. Rifgirðingar fóru í eyði árið 1974.

Kjóeyjar eru hluti Rifgirðinga. Milli Norðureyjar og Gusseyjar er Norðureyjarsund. Austan á Gussey er Vörðuhóll, sem er siglingarmerki á leiðinni í Röstina. Kjóey er suðaustan Norðureyjar og rif á milli, sem fer í kaf á flóði. Hún er grasi vaxin og stór. Rústir bæjar og garða sjást greinilega suðaustast á henni. Lynghólmi er stór og lyngi vaxinn hólmi suðaustan Kjóeyjar og Kjóeyjarvogur á milli. Sagnir segja, að Öxneyjarbærinn hafi upprunalega verið í Galtarey og nautum hafi verið beitt í Öxney. Nú stendur sumarhús í Galtarey.

Myndasafn

Í grennd

Breiðafjarðareyjar, Þúsund Eyja Flói.
Breiðafjörður er annar stærsti flói landsins (mynnið 70 km breitt). Innan til, þar sem hann er grynnri, eru óteljandi eyjar (u.þ.b. 2700 með einhverju…
Öxney
Öxney er önnur stærsta eyjan undan Skógarströnd og henni fylgja nálægt hundrað eyar, hólmar og sker. Svo skammt er á milli Öxneyjar og Brokeyjar í my…
Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )