Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Reykjahlíðarkirkja

Reykjahlíðarkirkja er í Skútustaðaprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi. Reykjahlíð var bær og  en nú smáþorp og mikill ferðamannastaður við Mývatn norðaustanvert.

Í Mývatnseldum fyrri, 1724-1729, tók Reykjahlíðarbæinn af og hraunstraumurinn fór báðum megin við kirkjuna án þess að skemma hana. Guðlegri forsjón var þakkað. Katólskar kirkjur í Reykjahlíð voru helgaðar heilögum Lárentíusi.

Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1958-1962. Jóhannes Sigfússon á Grímsstöðum teiknaði hana og smíðaði. Hún tekur 120 manns í sæti og á marga góða gripi, m.a. skírnarsá, sem Jóhannes Björnsson á Húsavík skar út auk myndskurðar á prédikunarstólnum. Batikmyndirnar í kórnum eru eftir Sigrúnu Jónsdóttur.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )