Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Prestbakkakirkja

Kirkjan er í Kirkjubæjarklausturprestakalli í Skaftafellsprófastsdæmi. Kirkja var lögð af á Klaustri og ný  á Prestbakka 1859. Jóhannes Jónsson úr Reykjavík var yfirsmiður. Prestsbakkakirkja er úr timbri með forkirkju og sönglofti. Hún tekur u.þ.b. 200 manns í sæti.

Árið 1910 var hún skreytt og máluð af Einari Jónssyni, málara. Gréta og Jón Björnsson skýrðu og lagfærðu verk Einars á aldarafmæli kirkjunnar. Skírnarsáinn gerði Ríkharður Jónsson. Myndirnar á honum visa til eldmessunnar 1783. Altaristaflan er eftir Anker Lund.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )