Prestbakkaá er lítil tveggja stanga á. Við hana stendur ágætt hús fyrir veiðimenn, þar sem þeir sjá um sig. Áin rennur í vestanverðan Hrútafjörð. Hún er engin afburðalaxá, aflinn er á milli 50 og 200 laxar á ári. Þegar skilyrði eru góð, veiðast gjarnar stórir laxar.