Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Paradísarhellir

eyjafjallajökull

Stóra-Borg er undir Austur-Eyjafjöllum. Þar var kirkjustaður og stórbýli fyrrum austan Bakkakotsár.  var   kirkja til ársins 1699. Um aldamótin 1200 hét bærinn Austasta-Arnarbæli. Sjór hefur gengið jafnt og þétt á land Stóru-Borgar, svo bærinn var fluttur austar og ofar árið 1840. Landbrotið hefur svipt hulunni af mörgum forngripum í Borgarhóli og margir þeirra eru í safninu að Skógum. Allt frá árinu 1978 hefur Þjóðminjasafnið staðið fyrir rannsókn á fornminum á staðnum. Þá þegar var mikið horfið af moldum kirkjugarðsins og rústum kirkjunnar. Elzta krikjan þar var líklega stafkirkja með nokkru þrengri kór en framkirkjan. Undirstöður sex hornstafa fundust í rúst kirkjunnar.

Hér að neðan er texti úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar um Önnu á Stóru-Borg. Jón Trausti (Guðmundur Magnússson) skrifaði skáldverk um hana.

Vigfús Erlendsson á Hlíðarenda, lögmaður og hirðstjóri 1515, var maður ákaflega ríkur og mikill höfðingi. Hann átti Guðrúnu Pálsdóttir lögmanns á Skarði Jónssonar. Þeirra dætur voru tvær; Guðríður kona Sæmundar í Ási og Anna var önnur. Hún fór ógift að heiman,að Stóruborg undir Eyjafjöllum, eignarjörð sinni, sem þá var einhver mesta jörð undir Fjöllum. Heyrt hefi ég að þar hafi verið sextíu hurðir á hjörum; sem var oft notað sem mælikvarði á stærð bæja.

Anna varð auðug og til marks um búrisnu hennar voru þrjú selstæði: Í Seljunum, á Ljósadíla og á Langanesi. Sagt er að margir hafi beðið hennar, en hún verið mannvönd og engum tekið.

Hjá henni var smaladrengur, Hjalti Magnússon, lítilsigldur, en félegur. Einu sinni í kalsaregni um sumar hafði Hjalti verið yfir fé og kom heim húðhrakinn og votur. Voru þá piltar hennar að nota rekjuna. Slógu þeir nú upp á glens við Hjalta og buðu honum ærið fé til að fara nú heim eins og hann var hrakinn og upp í hjá húsmóðurinni. Hjalti fór nú heim og upp í loftstigann, en er hann rak upp höfuðið leit Anna við honum. Varð hann þá einurðarlítill og dró sig í hlé. Þannig fór í þrjár reisur. Anna tók eftir þessu óvanalega einurðarleysi Hjalta og segir: „Hjalti! Hvað er þér?“ Hann segir henni hvað vinnumenn hennar hefði lofað honum. „Tíndu þá af þér leppana, drengur minn, og komdu upp í,“ segir hún. Hann afklæðir sig og fer upp í. Sofa þau nú fram eftir deginum eins og þeim líkar og er mælt henni hafði líkað drengurinn allvel er honum fór að hlýna. Svo sendir hún til piltanna og biður þá sjá hvar Hjalti var; heimtar nú af þeim það þeir lofuðu og máttu þeir til að inna það af hendi, svo var hún ráðrík.

Oft hafði Anna haft það um orð, hve augu Hjalta væru fögur. Eftir þetta sænguðu þau saman og eignuðust börn. Þessu reiddist Vigfús faðir hennar svo ákaflega, að hann sat um líf Hjalta og gerði honum lífið eins óbærilegt og kostur var. Hjalti hafðist við í ýmsum stöðum. Sagt var, að hellar væru fyrir framan Stóruborg og væri þaðan stuttur sprettur heiman frá Stóruborgarhólnum. Voru þessir hellar kallaðir Skiphellrar því þar settu menn skip sín inn í. Þar hafðist Hjalti við um stund. Hest átti hann brúnan , mesta afbragð; var það lífhestur hans. Þetta frétti Vigfús faðir hennar og fór þangað með margmenni. Kom hann að Hjalta þarna í hellinum. Hafði hann ekki annað ráð en hlaupa á bak Brúni og hleypti undan. Eltu menn hann, en Brúnn var svo góður hestur að enginn sá á eftir honum. Þá bjó Eyjólfur í Dal frændi hennar Einarsson og Hólmfríður Erlendsdóttur, systir Vigfúss hirðstjóra. Eyjólfur skaut skjólshúsi yfir hann. Sumir segja hann kæmi honum til Markúsar Jónssonar á Núpi sem átti Sesilíu Einarsdóttir á Múla, systur Eyjólfs, en Markús keypti trúnað bónda þess er bjó á Fit og kæmi hann honum í Fitjarhelli og skammtaði honum mat. Mátti hann vitja hans á vissum stað. Þarna var hann svo árum skipti, en er hann varð sýkn nefndi hann hellirinn i virðingarskyni Paradís. Hann er nú ýmist nefndur Paradísar- eða Fitjarhellir. Svona var mér sagt þegar ég var ungur. Aðrir segja hann hafi haft aðsetur sitt í helli þeim á Seljalandi er kallaður er Kverkarhellir og verið undir vernd Seljalandsbóndans. Þrátt fyrir ofsóknirnar, var hann þó alltaf með annan fótinn í Stóruborg og eignaðist fleiri börn með Önnu, alls átta talsins.

Einu sinni kom Vigfús lögmaður faðir hennar í heimsókn, þegar Hjalti var hjá henni. Þá sá hún enga aðra leið en að læsa hann í kistu sinni. Vigfús leitaði Hjalta, þar sem honum fannst líklegt, að hann fælist. Anna sat á kistu sinni og lét sem ekkert væri. Vigfús spurði hana, hvað væri í kistunni. Hún kvað það barnaplögg sín. Faðir hennar reiddist svo mjög, að han gerði hana arflausa.

Einu sinni kom Vigfús erinda sinna utan yfir fljót með sveinum sínum. Fljótið féll þá á millum skara og var ekki árennilegt. Sveinar hans voru allir komnir yfir á undan honum. Ís var báðum megin háll sem gler. Losnaði Vigfús við hestinn og barst að skörinni fyrir framan Hamragarða. Varð sveinum hans ráðafátt að ná honum. Í því kom maður að ríðandi í fluginu á brúnum hesti, stökk af baki og renndi sér fótskriðu fram að vatninu, greip í lurg Vigfúsi og kippti honum upp á skörina; renndi sér svo skóbrunu til sama lands, stökk á bak og reið brott. „Hver hafði svo karskar hendur í hári mínu, sveinar?“ segir Vigfús. „Það var Hjalti mágur þinn,“ gellur einn þeirra við. „Þegja máttir þú,“ segir Vigfús, „því þögðu betri sveinar,“ og rak honum löðrung. Áfram hélt hann ferðinni og að Stóruborg. Sagt er að Anna hafi búið börn sín í skrúð og skart og léti þau öll ganga fyrir afa sinn og biðja hann að gjöra móður sína arfgenga. Karli gekkst hugur við bæn barnanna, leizt þau heldur féleg; þess og annars að Hjalti var búinn að gefa honum líf með öðru eins snarræði, gjörði hann eins og þau báðu.

Eftir þetta giftust þau með góðu leyfi Vigfúsar. Seinna buggu þau að Teig í Fljótshlíð, langfeðgaeign hennar. Magnús í Teig var sonur þeirra; átti Þórunni Björnsdóttir offícíalis í Saurbæ Gíslasonar. Þeirra synir: 1) Árni á Heylæk faðir Þuríðar konu síra Gísla Bárðarsonar á Skúmsstöðum, föður Erlendar, föður Þrúðar konu séra Ólafs í Dal, föður Ingiríðar, móður Jóns Guðmundssonar eldra í Mörk er dó 1820. 2) Páll í Heynesi er átti Þórunni Einarsdóttir frá Hólum í Eyjafirði Grímssonar. Þeirra börn: a) Björn og b) Þórunn, átti Hallgrím lögréttumann í Kerlingardal, föður Jóns á Borg í Meðallandi, föður Hallgríms í Kerlingardal er átti Dómhildi Helgadóttir úr Landeyjum Ólafssonar. Þeirra börn: aa) Klémus í Kerlingardal og bb) Hólmfríður á Ketilsstöðum langamma mín og [cc)] Guðrún er átti Jón Runólfsson á Höfðabrekku afa síra Jóns Austmanns.

Heimildir: Jón Árnason, íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, Reykjavík, 1955, IV, 200 – 202.

Myndasafn

Í grennd

Hvolsvöllur
Hvolsvöllur á Suðurlandi Hvolsvöllur er kauptún í austanverðri Rangárvallasýslu, sem fór að byggjast á fjórða áratugi 20. aldar, þegar brýr voru komn…
Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Undir Eyjafjöllum
Eyjafjöll eru meðal hærri fjalla landsins (1666m) og nafngjafi þeirra er Vestmannaeyjar skammt undan ströndinni. Þessi fjallgarður vestur úr fjallendi…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )