Örlygsstaðir eru sögustaður í Blönduhlíð í Skagafirði. Þar eru tóttir og leifar af gerði í kringum þær í mýrarflóa, en ekki er víst, að þar hafi verið stundaður búskapur.
Sturlunga segir frá bardaganum á Örlygsstöðum 21. ágúst 1238, sem var hinn örlagaríkasti á landinu og annar blóðugasti á Sturlungaöld. Þar börðust voldugustu ættir landsins, Ásbirningar og Haukdælir gegn Sturlungum, til úrslita um völdin í landinu. Sturlungar biðu þar lægri hlut og milli 50 og 60 menn féllu í valinn.
Níðingsverk voru unnin, m.a. voru kirkjugrið rofin á þeim, sem flúðu í kirkjuna að Miklabæ. Á söguferð um Skagafjörð er óhjákvæmilegt að líta við á Örlygsstöðum, þótt merki þessa atburðar séu horfin, og reyna að upplifa söguna.