Nykurvatn, 0,7 km², er uppi frá byggðum Vopnafjarðar. Það er talið nokkuð djúpt og það liggur 424 m yfir sjó. Frárennsli þess er Teigará, sem fellur til Hofsár.
Vatnið er við þjóðveg nr. 85 á Vopnafjarðarheiði eins og Þuríðarvatn, sem er rétt hjá. Mólendi er við vatnið og allmikið er þar af fiski, eingöngu ½-5 punda vatnableikja. Nykurinn, sem vatnið heitir eftir, sást annað veifið á beit á vatnsbakkanum fyrir löngu síðan. Engum tókst að fanga þennan vatnahest.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 590 km og 23 km frá Vopnafirði.