Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Nýfundnaland

Nýfundnaland nær yfir samnefnda eyju og Labrador á meginlandinu. Þetta er yngsta fylkið í sögu landsins (1949). Landkönnuðir á 15. öld skýrðu eyjuna. Heildarflatarmál fylkisins er 405.722 km², þar af er eyjan 112.790 km² og Labrador 292.722 km². Eyjan liggur þvert fyrir St. Lawrenceflóa. Milli hennar og Labrador er mjótt Belle Islesundið og Cabotsund er milli hennar og Nova Scotia. Vestan og sunnan Labrador er Quebecfylki. Nýfundnaland er austasti hluti Norður-Ameríku og lega þess er hernaðalega og samgöngulega mikilvæg.

St. John’s, höfuðborgin, er nær Írlandsströndum en Winnipeg. Fiskimið, t.d. Mikilbanki, léku líka stórt hlutverk í efnahag íbúanna á 16.000 kílómetra langri, lábarinni og vogskorinni strönd eyjarinnar. Fiskveiðar á þessum slóðum hafa mótað sögu og einkenni lands og fólks um aldir. Íbúar Nýfundnalands eru ekki einir um að hafa orðið fyrir áhrifum af þessum veiðum, heldur næstum öll Vestur-Evrópa og BNA að hluta eins og má lesa um í bókinni „Ævisaga þorsksins” eftir Mark Kurlanski (1997), sem Ólafur Hannibalsson þýddi 1998 og allir ættu að lesa.

Lítið eitt um BNA

 

Myndasafn

Í grennd

Allt Ísland í stafrófsröð
Flestar síður sem fjalla um Ísland úr Ferðavísi is.nat.is Ábæjarkirkja Skagafirði Aðalból. Jökuldal Aðaldalur Aðalmannsvatn Aðalvík á H…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )