Nessókn er byggðin vestan Hringbrautar að flugvelli, ásamt Skerjafirði og að bæjarmörkum Seltjarnarness.
Nesprestakall var stofnað 1940 ásamt Laugarnes – og Hallgrímsprestaköllum. Fyrir þann tíma var Dómkirkjan sóknarkirkja allra Reykvíkinga í þjóðkirkjunni. Var landsvæðið sem tilheyrði prestakallinu nokkuð stórt. Eða eins og stóð í lögum „liggur Nesprestakall að hinum prestaköllunum þremur og nær yfir land Reykjavíkurbæjar vestan Reykjanesbrautar, Seltjarnarnes og Engey.“
Fyrsti prestur safnaðarins, sr. Jón Thorarensen, kom til starfa í byrjun ársins 1941.
Safnaðarstarfið fór fyrst fram í Háskólakapellunni og í skólanum á Seltjarnarnesi.
Kirkjan sjálf var vígð pálmasunnudag 1957. Arkitekt kirkjunnar var Ágúst Pálsson, húsameistari. Fyrir nokkrum árum kirkjan friðuð hið ytra sem dæmi um eina fyrstu nútímabyggingu á Íslandi.
Í kirkjunni er að finna glerverk eftir Gerði Helgadóttur og Leif Breiðfjörð.
Árið 1999 var nýtt orgel sett tekið í notkun og um leið voru gerðar nokkrar breytingar á kirkjunni að innan.