Miklaholtskirkja er í Staðarstaðarprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Bærinn Miklaholt er og fyrrum prestssetur í Miklaholtshreppi. Elzti máldagi kirkjunnar, líklega frá 1181, er enn til. Katólsku kirkjurnar á staðnum voru helgaðar Jóhannesi skírara og útkirkja var á Rauðamel ytri frá 1645.
Kirkjan, sem nú stendur á Fáskrúðarbakka, var vígð 1936 og Miklaholtskirkja lögð af. Prestssetrið var jafnframt flutt að Söðulsholti. Mörgum fell þessi ráðstöfun illa, svo að Magnús Sigurðsson, bóndi í Miklaholti, hafði forgöngu fyrir byggingu kirkju úr steinsteypu 1945. Hún var vígð 28. júlí 1946.
Turninn og forkirkjan voru reist 1961. Kristján Gíslason var yfirsmiður. Fáskrúðarbakkasöfnuður á og rekur kirkjuna. Í henni eru margir góðir gripir. Altari og prédikunarstóll eru úr gömlu kirkjunni og ýmsir gripir frá 18. öld. Númeratöfluna gerði líklega Sölvi Helgason 1844. Hún er í vörzlu sóknarprests. Kurt Zier gerði altaristöfluna og á skírnarsánum er mynd eftir Ragnar Kjartansson.