Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Miðheiðarvötn

Miðheiðarvötn eru nokkur í hvirfingu á miðri Tröllatunguheiði og tilheyra Kirkjubólshreppi í  . Þau eru 0,7 km², nokkuð djúp og í 460 m hæð yfir sjó.

Frá þeim renna upptök Hrófár til norðurs í sunnanverðan Steingrímsfjörð. Þjóðleiðin um heiðina liggur rétt við þau. Ágæt bleikja er í þeim, en seiði voru sett í vötnin í kringum 1965. Spónn og fluga duga vel. Netaveiði er ekki stunduð.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 185 km og 25 km frá Hólmavík.

 

Myndasafn

Í grennd

Strandir, ferðast og fræðast
Mörk þessa svæðis eru hér dregin frá Húnaflóa til Jökulfirða. Þéttbýlis- og merkisstaða innan svæðisins er sérstaklega getið hér að neðan. Strandir er…
Veiði Strandir
Stangveiði á Ströndum. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn.  Laxveiði Strandir …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )