Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Mælifellshnjúkur

Mælifellshnjúkur er sunnan Mælifells, þekkts prestseturs. Hnjúkurinn er mjög áberandi, því hann er  hærri en öll nærliggjandi fjöll og sést úr 10 sýslum. Því má vera ljóst, að fjallganga gefur kost á miklu víðsýni. Fjallið er úr móbergi og þar finnst einnig svolítið af bólstrabergi. Fjallið er líklega jafngamalt Þórðarhöfða og öðrum fjöllum við norðanverðan Skagafjörð.

Fornleiðin yfir Kjöl lá um Mælifellsdal, vestan hnjúksins. Þaðan lá líka leið um Stórasand og Kaldadal (160 km; þriggja daga ferð).

 

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Norðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Ábæjarkirkja Aðaldalur Akureyrarflugvöllur Akureyri Innbærinn Árbæjarkirkja Skaga…
Varmahlíð, Skagafjörður
Þegar ekið er niður þjóðveg 1 til austurs um Stóra-Vatnsskarð er komið í Varmahlíð í hlíðum Reykjarhóls. Þar er upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn. Ja…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )