Lönguvötn eru í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu. Þau eru allmörg og aðskilin af mjóum . Samanlögð stærð þeirra er 0,48 km² og þau eru í 378 m hæð yfir sjó. Mesta dýpi er 5 m. Aðrennsli ofanjarðar er ekki sjáanlegt, en lækur rennur frá þeim til Laxár.
Það má skrönglast á jeppum 5-6 km leið til vatnanna frá þjóðvegi. Í vötnunum er vænn urriði, allt að 9 pund, meðalþyngd 2-3 pund. Veiði í þessum vötnum er talsvert eftirsótt og fjöldi stanga er ekki takmarkaður.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 120 km.