Ljósalandsvatn telst til Vopnafjarðarhrepps en mun vera á mörkum hans og Skeggjastaðahrepps. það er 0,41 km², grunnt og í 244 m hæð yfir sjó. Stórilækur rennur úr því suður til Vopnafjarðar. Frá þjóðveginum liggur vegur, fær öllum bílum, að vatninu. Mikið er af smárri bleikju í vatninu. Fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Netaveiðitilraun leiddi í ljós, að vatnið er ofsetið og þar þyrfti að grisja.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 645 km og 17 km frá Vopnafirði.