Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Litlibær í Skötufirði

Litlibær

Litlibær í Skötufirði var í ábúð til ársins 1969, þegar jörðin fór í eyði. Árið 1999 tók Þjóðminjasafnið íbúðarhúsið undir sinn verndarvæng og hóf enduruppbyggingu þess. Torfbærinn var upprunalega byggður árið 1894, Kringum 20 manns bjuggu í honum á tímabili en eftir 1917 bjó þar aðeins ein fjölskylda. Grunnflötur bæjarins er 3,9 x 7,4 m (utanmál) og portbyggt loft er yfir jarðhæðinni. Tvö eldhús voru skammt frá íbúðarhúsinu og alls munu liðlega 20 manns hafa búið í Litlabæ á tímabili. Frá árinu 1917 bjó aðeins ein fjölskylda á jörðinni. Búið var í Litlabæ fram til 1969.

Meðal margra tótta innan og utan steinhlaðins veggjar umhverfis bæinn er hringlaga fjárborg, sem er talin mun eldri en aðrar hleðslur við Litlabæ.

Byggðasafn Vestfjarða á Ísafirði sér um sýningu á búskaparháttum á fyrri hluta 20. aldar í bænum.

Túnið er afmarkað af steinhlöðnum garði og mælist það um 3 hektarar. Einstaklega vel hefur verið vandað til allra steinhleðslna.

Íbúarnir hafa lifað af sjávarnytjum ekki síður en landbúnaði.

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Vestfjörðum
Álftafjörður Álftamýri Arnarfjörður Arnarnes Æðey Barmar Bjarkarlundur Borgarland Botn er í Bo…
Torfbæir og torfkirkjur
Nokkrir torfbæir á landinu Íslenski torfbærinn á sér sögu sem einstæð er í heiminum og er ekki rannsökuð til fulls. Torfbærinn er í raun þyrping húsa…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )