Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Laugabakkar, Ölfusá

Veiði á Íslandi

Næst fyrir neðan Tannastaðatanga. Telst líklega vera Ölfusá þó enn gæti tæra vatnsins úr Soginu. Nokkrir laxar veiðast þarna á sumri hverju og mismikið af sjóbirtingi. Tvær stangir. eru leyfðar á svæðinu.
Bærinn Laugabakkar stendur að norðanverðu við Ölfusána, ofarlega. Þar var stunduð netaveiði á laxi en er nú aflögð fyrir áratugum síðan.
Stangaveiði hefur verið stunduð lengi á Laugabökkum, og má veiða þar á tvær stengur. Bakkalengd er 1,7 km. og nær frá Tannastaðalandi að ofan niður að landi Skógræktarinnar. Besti veiðistaðurinn er við lítinn klettahöfða, sem gengur út í ána skammt frá bænum.
Ekki liggja fyrir hjá mér öruggar tölur um veiði undanfarinna ára. Núverandi eigandi Laugabakka hyggst fyrst og fremst nýta veiðina fyrir sig og sína, nema hvað Veiðifélag Árnesinga ráðstafar dögunum frá 10. til 20. ágúst ár hvert.

Myndasafn

Í grennd

Veiði Suðurland
Stangveiði á Suðurlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og veiðivötn. Laxveiði Suðurlandi Brúará – Hagós Brúará – …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )