Langavatn í Skagahreppi í A-Húnavatnssýslu er stærsta stöðuvatnið á vestanverðum Skaga, norðan Skagastrandar og austan Hofs. Það er 3,5 km², grunnt og í 207 m hæð yfir sjó. Fjallabaksá rennur í suðurenda þess en frá því rennur Langavatnsá gegnum Skjaldbreiðavatn, þar sem veiðileyfi eru ekki seld almenningi. Neðst heitir áin Fossá og hún steypist fram af Króksbjargi í sjó fram. Bílfært er að vatninu, en ella verður að ganga 5 km. Mikið er af góðum fiski í vatninu, bæði urriði og bleikja, 1-3 pund.
Hægt er að aka að vestanverðu Langavats um vegaslóð frá Steinnýrarstöðum á 4×4 bílum
Vegalengdin frá Reykjavík er um 290 km ( og 15 km frá Skagaströnd.