Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kirkjuhvammskirkja

Kirkjuhvammskirkja á Hvammstanga var byggð árið 1882. Höfundar hennar voru Björn Jóhannsson og   Stefán Jónsson, forsmiðir. Hún hefur verið í vörzlu Þjóðminjasafnsins síðan 1976 og var sett á fornleifaskrá 20. ágúst 1976. Árið 1990 var hún friðuð.

Kirkju er fyrst getið í máldaga árið 1318 og sennilega hefur alltaf verið um torfkirkjur þar að ræða, sem staðið hafa í kirkjugarðinum á svipuðum stað og sú sem þar stendur nú.

Kirkjuhvammskirkja er úr timbri með bindingsverki og veglegum turni, smíðuð af Birni Jóhannssyni og Stefáni Jónssyni frá Syðstahvammi sumarið 1882, en sagt er að ekkert sumar hafi komið þá á Norðurlandi og snjóað í hverri sumarviku. Kirkjan er af yngri gerð kirkna með turna á þaki. Kirkjuhvammskirkja var sóknarkirkja til ársins 1957, en það ár var ný kirkja vígð á Hvammstanga. Hrörnaði gömlu kirkjunni fljótt og stefndi í að hún yrði rifin. Velunnarar hennar lagfærðu hana lítilsháttar árið 1964 og kirkjan kom í umsjá Þjóðminjasafnsins árið 1976. Hófst umfangsmikil viðgerð á henni árið 1992. Hún var endurvígð sumarið 1997 að þeirri viðgerð lokinni.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )