Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kirkjufellsvatn

Veiðivotn

Kirkjufellsvatn er austan Kirkjufells (964m) og úr því fellur Kirkjufellsós til Tungnár, en við hann eru Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýslna. Vatnið er 0,9 km² og í 573 m hæð yfir sjó. Það er skammt sunnan Landmannaleiðar og greiðfært að því. Umhverfið er nokkuð gróið og mjög fagurt.

Í vatninu var einungis urriði en nú orðið er miklu meira af bleikju. Talið er að þessi fiskur komi úr Tungná. Hann var miklu stærri og vænni fyrrum, þegar meira var veitt. Lítill veiðiskúr er austan við vatnið og ekki er langt í annan lítinn skála í Kýlingum, sem heitir Höll. Sunnan og vestan vatnsins eru friðlýst svæði.

Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b 190 km.

Veiðileyfið gildir fyrir öll vötnin
að Fjallabaki:

Myndasafn

Í grennd

Hálendisveiði
Hálendisveiði skiptist í 5 veiðisvæði. Þannig er best að velja svæði og síðan hvernig farið er þangað hér að neðan. Þessi svæði eru Arnarvatnsheiði…
Vötn að fjallabaki
Hin eina sanna Landmannaleið liggur á milli Landsveitar og Skaftártungu um Dómadal. Þetta er einn og litskrúðugasti fjallvegur landsins, sem er akfær…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )