Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Keflavíkurkirkja

Keflavíkurkirkja er í Keflavíkurprestakalli í Kjalarnesprófstsdæmi. Hún er teiknuð af Rögnvaldi arkitekt  keflavikurkirkja og byggð árið 1914 eins og sjá má framan á kirkjuturni. Hins vegar var kirkjan vígð 1915, hinn 14. febrúar. Staður var kirkjunni valinn í samráði við arkitektinn haustið 1913. Kirkja hafði ekki staðið áður á þessum stað.

Um aldamótin hafði að vísu verið langt komið byggingu kirkju, sem Guðmundur Jakobsson hafði teiknað og smíðað en sú kirkja, sem þá var að heita má fullgerð, skemmdist í óveðri í nóv. 1902 og var smíði hennar þá hætt. Altaristaflan er eftir Ásgrím Jónsson og sýnir Jesúm flytja Fjallræðuna; hefur hún verið í kirkjunni allt frá upphafi. Steindir gluggar eftir Benedikt Gunnarsson, myndlistarmann, voru settir í glugga kórs og framkirkju árið 1976.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Reykjanesi
Listi yfir flestar kirkjur landshlutans Grindavíkurkirkja Hvalsneskirkja Kálfatjarnarkirkja Kálfatjörn Keflavíkurkirkja …
Kirkjur á Suðvesturlandi
Það er erfitt að draga skörp landfræðileg skil milli kirkna, kirkjustaða og sögu kristninnar á milli landshluta. Á þessum vef fer skiptingin ekki efti…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )