Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kálfborgarárvatn

urridi

Kálfborgarárvatn er 3,5 km² stöðuvatn á heiðinni austan Bárðardals. Það er alldjúpt á köflum og hæð þess yfir sjó er 359 m. Útrennsli þess er Kálfborgará til norðurs í Skjálfandafljót. Jeppum er fært að vatninu, bæði að vestan og austan. Umhverfi þess er hlýlegt, lynggrónir ásar. Talsvert er af fiski í vatninu, urriði ½-3 pund. Netaveiði er talsverð og ísdorg á vetrum. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 445 km um Akureyri.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )