Jósepsdalur er dalskál undir Vífilsfellinu vestanverðu og Ólafsskarði, þar sem lá fyrrum alfaraleið milli Reykjavíkur og Ölfuss.
Sagt er, að Jósep nokkur hafi búið í dalnum. Hann var hagur smiður en munnsöfnuður hans var hroðalegur. Hann bölvaði og ragnaði eitt sinn svo mikið, að bær hans sökk.
Skíðadeild Ármanns átti skíðaskála í dalnum, sem var fjölsóttur á fyrri hluta 20. aldar. Hægt er að aka frá þjóðveginum upp í skarðið handan Vífilsfell og er þá skömm ganga upp á top þess.