Fallegt gil sunnan við þjóðveginn, innarlega í Njarðvík. Ef gengið er skammt upp með ánni, inn í gilið má sjá sérstæð náttúrufyrirbæri þar sem samspil ríólíts og blágrýtis skapar sérstæðar myndir. Gangan inn í gilið tekur ekki meira en 5 mínútur en hægt er að aka á öllum bílum alveg upp að gilkjaftinum. Litasamsetningin þarna er sérstök og mjög sérkennilegt mynstur er víða í lækjarfarveginum inni í gilinu.