Eitthvert sérkennilegasta og fegursta fjall landsins. Hvítserkur er úr ljósu bergi, ingnimbrít (flikrubergi) en dökkir berggangar skerast þvers og kruss í gegnum fjallið. Fjallið er þó ekkert sérstakt að sjá frá Borgarfirði eystri og menn verða því að leggja á sig ferðalag yfir Húsavíkurheiði til að sjá þessar sérstæðu myndanir. Því ferðalagi sér enginn eftir, sem það leggur á sig. Fara má á öllum 4×4 bílum en hluti leiðarinnar er á grófum vegi svo ástæða er til varkárni eins og alltaf þegar farið er á ókunnum slóðum.