Er í Hvítá, þriggja stanga þekkt veiðisvæði, sem var mun betra hér á árum áður, en á þó enn sínar stóru stundir. Veiðin er frá nokkrum tugum upp í hart nær 200 fiska á sumri. Veiðihúsið er skemmtilega hlaðið og sérstakt. Þarna veiðast oft miklir drekar.
Veiðihúsið: Tvö svefnherbergi, eldhús, stofa og salerni.