Hrefna – HRAFNREYÐUR (MINKE WHALE) (Balaenoptera acutorostrata)
Hrefnan, einnig nefnd hrafnreyður, verður sjaldan lengri en 9 m. Karldýrin vega 5-8 tonn og kvendýrin 8-10 tonn. Skíðin eru ljósgul og bakugginn er yfir raufinni. Hrefnan er auðþekkt á hvítu þverbelti yfir bægslin. Hún er í öllum heimshöfum, flytur sig að ísjaðrinum í norðurhöfum síðla vetrar en heldur sig ella sunnan 50°N, allt suður að Hatterashöfða í Ameríku og Miðjarðarhafi. Lífslíkur eru u.þ.b. 50 ár.
Hrefnan makar sig í janúar til maí, meðgangan tekur u.þ.b. 10 mánuði og hún fæðir einn 2,7 m langan (350-400 kg) kálf á ári í nóvember til marz. Hann er á spena í u.þ.b. 4 mánuði. Fæðuval hrefnunnar er talsvert frábrugðið öðrum skíðishvölum, þar sem hún innbyrðir meira af fiski en þeir, loðnu og síld, en samt einnig ljósátu.
Hrefnan er talsverður einfari, en sést í smáum og stórum vöðum. Ung dýr sýna skipum sérstakan áhuga og þurfa að nálgast þau fyrir forvitni sakir. Hrefnan er strandhvalur og er oft nálægt landi, einkum kvendýrin. Hrefnan er algeng umhverfis allt landið (55.000 dýr) og var einungis veitt fyrir Norðurlandi fyrrum (200 dýr á ári). Heildarfjöldi í heiminum u.þ.b. 1 milljón.