Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hofteigskirkja

Hofteigskirkja er í Varþjófsstaðaprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Hofteigur er bær, kirkjustaður og  að lögum til 1957 á neðanverðum Jökuldal. Séra Þorvarður Þormar (1896-1970) var síðasti presturinn þar en hann fluttist brott 1928, Hofteigi var lengi þjónað frá Kirkjubæ í Hróarstungu, síðar frá Eiðum og síðan frá Vallanesi þangað til sóknin var lögð til Valþjófsstaðar árið 1970. Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Maríu guðsmóður. Útkirkjur voru á Eiríksstöðum og í Möðrudal. Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1883 úr járnklæddu timbri. Hún var standklædd og stendur á steyptum grunni. Árið 1931 var hún verulega endurbætt og endurbyggð á árunum 1970-1972 á kostnað ríkisins, því að hún er ein af fáum lénskirkjum, sem eru eftir í landinu.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )