Hofsóskirkja er í Hofsósprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi. Steinkirkjan á Hofsósi var vígð 28. ágúst 1960. Áður áttu Hofsósbúar kirkjusókn til Hofs á Höfðaströnd. Árið 1891 voru Fells- og Hofsprestaköll sameinuð og Fellsprestur fluttist til Höfða, þar sem var útkirkja frá Felli.
Vorið 1906 var prestssetrið flutt til Hofsóss. Kirkjan tekur 164 í sæti, kórinn er upphækkaður og milligerð úr viði milli hans og aðalkirkju. Sveinn Kjarval, arkitekt, teiknaði ljósabúnaðinn. Stór ljóskross er yfir altari í stað töflu. Skírnarsárinn er úr stuðlabergi, sem tekið var úr Staðarbjargavík á Hofsósi.