Hnúksvatn er í Jökuldalshreppi í N-Múlasýslu. Það er 0,72 km² og í 595 m hæð yfir sjó. Lítið sem ekkert vatn rennur til þess ofanjarðar, en frárennslið er Hnúksá, sem fellur til Jökulsár á Brú.
Jeppaleið liggur til vatnsins, sem er í lægð á milli fjalla, Kiðufell í norðri og Þórfell í suðri. Sæmilegasta bleikja er í vatninu. Eigendur hafa stunda netaveiði í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 620 km og um 70 frá Egilsstöðum.