Hnausatjörn í Vatnsdal er u.þ.b. 400 m á kant. Veiðileyfi gilda í tjörninni allri og leyfðar eru 4 á dag. Veiðin er aðallega bleikja, en staðbundinn urriði og sjóbirtingur sjást af og til.
Silungurinn er að jafnaði 1 pund. Hnausatjörn er vinsæl veiðistöð, enda er aðbúnaður góður við vatnið, fallegt lítið veiðihús uppi í hlíðinni fyrir ofan vatnið og gnótt fiskjar.
Vegalengdin frá Reykjavík er 220 km og 18 km frá Blönduósi.