Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hítará

Hítará er talsvert vatnsmikil bergvatnsá á Mýrunum og kemur úr Hítarvatni. Fornfræg vegna   langtímadvalar Jóhannesar á Borg við hana fyrr á öldinni. Veiðihúsið Lundur er einnig frægt að endemum fyrir glæsilegt safn uppstoppaðra fugla og fleiri gamallra gripa. Ánni er skipt í nokkur svæði. Aðalsvæðið er veitt með 4-6 stöngum og er gjöfulast við Lund, nokkru niður fyrir brú og nokkuð upp fyrir brú. Tvö svæði eru ofar og ná til árinnar ofan svokallaðs Grettisbælis og þveránna Tálma og Grjótár. Góð laxveiði, en nokkuð sveiflukennd, er í ánni og hleypur sumaraflinn á bilinu 200 til 1000 laxar.

Áin er talin nokkuð köld og erfið uppvaxandi seiðum, auk þess sem mikið ger sela er í ósnum og selir synda oft alveg inn að Brúarfossi.Megnið af aflanum veiðist á aðalsvæðinu. Þar veiðist einnig drjúgt af mjög vænni sjóbleikju sem gengur snemma sumars. Efri svæðin eru með laxavon og staðbundnum urriða- og bleikjustofnum.

Brúarfoss er bær á syðri bakkanum og foss í ánni við þjóðveginn, rétt vestan brúar. Þar er veiðimannahús og sumarbústaður. Þarna bjó veitingamaðurinn og glímukappinn Jóhannes Jósefsson (1883-1967) í sumarfríum í mörg ár. Við fossinn eru fallegir og sérstakir skessukatlar.

 

Myndasafn

Í grennd

Veiði Vesturland
Stangveiði á Vesturlandi. Hér er listi yfir flestar laxveiðiár og silungsár og -vötn. Laxveiði Vesturlandi …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )