Herbjarnarfellsvatn er í 625 m hæð yfir sjó lítið eitt norðvestan skálanna við Landmannahelli og hægt er aka að því sunnanverðu. Veiðin í vatninu er stundum góð, 1½-2 punda urriði, en fáir stunda þar veiðar. Veiðileyfi eru seld í veiðihúsinu við Landmannahelli. og á internetinu.
Fish Partner:
Veiðikort
Herbjarnarfellsvatn
Herbjarnarfellsvatn er skammt vestan Landmannahellis og er vel fært að vatninu fyrir alla bíla eftir miklar vegabætur sumarið 2019. Brekkurnar upp að hálsinum og síðan niður að vatninu eru þó nokkrar, en ættu ekki að hamla för. Vatnið er í 625 metra hæð í fallegri skál undir Herbjarnarfelli og áætlað hefur verið að það sé um 1 km2 að flatarmáli.
Eingöngu er urriði í vatninu og þannig hefur það blessunarlega verið frá því fyrst var sleppt í það árið 1967. Stærðir fiska sveiflast nokkuð í vatninu og er það í beinum tengslum við sleppingar, mest veiðist af pundurum fyrstu árin eftir sleppingar, en heppnir veiðimenn ná þó alltaf stærri fiski. Sögur hafa gengið af stórum fiski þar á sveimi. Reglulegar sleppingar frá árinu 2016 hafa styrkt fiskistofninn í vatninu verulega.
Þess ber að geta að á nokkrum kortum er sýndur slóði frá bílastæðinu og inn með vatninu að austan og að Löðmundarvatni. Þessi slóði eru ekki akvegur, hér hafa kortameistarar farið hamförum og teiknað gönguleiðir sem akvegi.
Veiðifélagar Fish Partner veiða frítt í Herbjarnarfellsvatn
Myndasafn
Fish Parner
KAUPA VEIÐILEYFI
Fjarlægð frá Reykjavík:
160km
Veiðitímabil:
Meðan fært er á veiðisvæðið
Meðalstærð:
1/2-2 pund
Leyfilegt agn:
Fluga, maðkur, spún
Veiðibúnaður:
Einhenda #4-6
Bestu flugurnar:
Straumflugur, púpur og þurrflugur
Aðgengi: 4×4