Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hafursey

Hafursey er móbergsfell á Mýrdalssandi norðanverðum. Það skiptist um Klofgil og vesturhlutinn er nefndur Skálarfjall (582m) og hæst ber Kistufell (513m) á austurhlutanum. Þarna er mikið fýlavarp og undirhlíðarnar eru vaxnar kjarri, en þar var skógur áður fyrr. Fellið var gott til beitar og bændur í Hjörleifshöfða létu fé sitt ganga þar sjálfala allt árið og höfði í seli á sumrin til 1854.

Þarna var áningarstaður ferðamanna um Mýrdalssand, því að þarna var alfaraleið til 1955, þegar vegurinn var fluttur mun sunnar. Laust eftir aldamótin 1900 var reist þar sæluhús og nú er þar skýli Slysavarnarfélags Íslands. Hellirinn Stúka, sem er vestan í fellinu, var skýli og náttból ferðamanna áður en húsin voru reist.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )