Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Hafurbjarnarstaðir

Hafurbjarnarstaðir eru bær í Miðneshreppi á Garðskaga. Rétt hjá Hafurbjarnarstöðum liggur hinn mikli   Skagagarður, sem eitt sinn girti af Skagatána og Garðskagi dregur nafn sitt af.

Á Hafurbjarnarstöðum uppgötvaðist forn kumlateigur , einhver merkast fundur fornleifa hérlendis. Hann var skoðaður árið 1868 og tekin upp úr honum bein og gripir, sem voru fluttir í Forngripasafnið. Lokarannsóknir fóru fram árið 1947.

Alls voru í teignum 9 kuml og í þeim bein sjö eða ef til vill átta manna og hafa þau verið rannsökuð. Einnig var fannsst mikið af beinum hunda og hesta. Þarna fannst allmargt gripa, s.s. vopn, skartgripir og fleira, og sennilega hefur verið þar bátskuml.

 

Myndasafn

Í grennd

Hafnir Ferðast og Fræðast
Hafnir, Keflavík og Njarðvík runnu saman í eitt sveitarfélag og nefnast nú einu nafni Reykjanesbær. Hafnir eru annað landstærsta sveitarfélagið á Reyk…
Sögustaðir Reykjanesi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Almenningur Reykjanes Básendar Brennisteinsfjöll Brúin Milli Heimsálfanna Eldborg…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )