Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Gönguleiðir Reykjanes

Gunnuhver
Gunnuhver Mynd: Cassie Boca

Gönguleiðir um Reykjanes.

Vogar-Njarðvík.  Ævagömul leið liggur um Reiðskarð yfir Vogastapa og Grímshól.

Vogar-Grindavík. Þessi leið er kölluð Skógfellaleið (6-7 klst.).

Vogar-Reiðskarð-Grímshóll-Snorrastaðatjarnir-Hábjallar-Vogar. Milli Snorrastaðatjarna og Hábjalla er gengið eftir misgengi, sem líkist Almannagjá á Þingvöllum.

Bergið í Keflavík. Þar er útivistarsvæði með gönguleið á bjargbrúninni til Helguvíkur.

Fitjar-Grindavík. Skipastígur er ævagömul leið (5 klst.).

Hafnir-Hafnaberg. Ganga frá bílastæði við veginn tekur u.þ.b. 40 mínútur. Þar er brúin milli heimsálfanna og hægur vandi að ganga yfir hana að Stömpum. Á þessum slóðum gaus síðast í kringum 1250.

Utanvert Reykjanes. Þar er hægt að ganga á marga útsýnisstaði, s.s. Skálafell, Háleyjarbungu og Sýrfell, og jafnvel um Eldvörp alla leið í Bláa lónið.

Hverasvæðið á Reykjanesi. Á Reykjanesskaganum eru talin vera 5 háhitasvæði og þetta er í röð hinna öflugustu á landinu. Þar verður að fara um með gát og sjá fótum sínum forráð. Merkastur hvera þarna er Gunnuhver.

Gönguleiðin Reykjavegur skiptist í nokkra áfanga, sem auðvelt er að bæta við. Þessir áfangar hefjast við Reykjanesvita og enda á Nesjavöllum eða bæta við leiðinni til Þingvalla og lengra ef vill. Það er hægt að ganga hvern áfanga á einum degi og láta sækja sig að honum loknum eða láta fyrirberast í tjaldi eða undir þaki, þar sem því verður við komið. Stungið er upp á eftirfarandi áföngum:
1. Reykjanesviti – Þorbjörn (Bláa lónið) 19 km
2. Þorbjörn – Leirdalur 13 km
3. Leirdalur – Djúpavatn 14 km
4. Djúpavatn – Kaldársel 18 km
5. Kaldársel – Bláfjöll 16 km
6. Bláfjöll – Hamragil 20 km
7. Hamragil – Nesjavellir 14 km

Víðast eru leiðirnar merktar með bláum stikum og bent er á afleiðir til áhugaverðra staða eða nærliggjandi bæja. Leiðirnar liggja um mólendi, mosagróin hraun, sand og mela. Þetta mun vera ein lengsta merkta gönguleið landsins og á áfangastöðum á að vera aðgangur að fersku vatni og salerni a.m.k. Þó verður að gæta þess, að við Höfða, skammt frá Fagradalsfjalli er engin slík aðstaða. Þar verður að nota neyzluvatn, sem fólk ber á sér sjálft. Komin er út kortabókin Reykjavegur með nánari leiðarlýsingu. Hún fæst á flestum stöðum, sem selja ferðatengt efni. Göngubúnaður á þessari leið þarf að vera góður og göngufólk fylgir vitaskuld leiðbeiningum Náttúruverndarráðs út í yztu æsar.

Myndasafn

Í grennd

Reykjanes, ferðast og fræðast
Reykjanes er yzti hluti Suðurnesja. Þar eru mikil ummerki eldvirkni og vart sést þar stingandi strá. Mest ber á dyngjum, s.s. Háleyjarbungu og Skálafe…
Sögustaðir Reykjanesi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Almenningur Reykjanes Básendar Brennisteinsfjöll Brúin Milli Heimsálfanna Eldborg…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )