Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Glæsibæjarkirkja

Glæsibæjarkirkja er í Möðruvallaprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Glæsibær er bær og kirkjustaður í   Kræklingahlíð, u.þ.b. 10 km norðan Akureyrar. Þar voru katólskar kirkjur helgaðar heilögum Nikulási. Útkirkjur voru í Lögmannshlíð og á Svalbarði. Prestakallið var lagt niður 1880 og öll Glæsibæjarsókn og ytri hluti Lögmannshlíðarsóknar voru lagðar til Möðruvalla, en fremri hluti Lögmannshlíðarsóknar til Akureyrar og Svalbarðssókn til Laufáss.

Timburkirkjan í Glæsibæ var byggð 1866. Þorsteinn Daníelsson byggði hana. Endurbygging að hluta fór fram 1929, þegar turninn var reistur. Kirkjan var upphafleg íbúðarhús á Ósi í Hörgárdal, byggt 1858. Silfurkaleikurinn ber ártalið 1612 (eða 1672) og Arngrímur Gíslason, málari, málaði altaristöfluna líklega nálægt 1870. Meðal góðra bóka kirkjunnar er Þorláksbiblía.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )