Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Galtastaðir

Á Galtastöðum fram er lítill torfbær frá 19. öld af svokallaðri Galtastaðagerð, sem hvorki telst til né norðlenskrar gerðar torfbæja, heldur á rætur í fornugerð og í stað þess að baðstofa liggi samsíða öðrum framhúsum, snýr hún, torfklædd, samsíða hlaði.

Í bænum er fjósbaðstofa, reist 1882 af Jóni Magnússyni snikkara, þar sem niðri er fjós en baðstofa er uppi yfir og nýttist ylurinn frá kúnum til húshitunar. Áður mun hafa verið tvíbýlt á jörðinni og stóðu þá tvær baðstofur að baki núverandi húsa.

Bærinn hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1976. Hann er því miður í mjög bágu ásigkomulegi og er ráðgert að fara í gagngerar viðgerðir á honum á næstu árum. Útihús eru víða uppistandandi og fátt sem bendir til þess að nútíminn hafi haldið innreið sína á svæðið.

 

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Austurlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landsins Aðalból Álfaborg Álfatrú Álftafjörður Ás í Fellum Ás í Fellum Áskirkja …
Torfbæir og torfkirkjur
Nokkrir torfbæir á landinu Íslenski torfbærinn á sér sögu sem einstæð er í heiminum og er ekki rannsökuð til fulls. Torfbærinn er í raun þyrping húsa…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )