Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Efri Brú

Efri-Brú er bær í Grímsnesi. Þar fæddist Reykjavíkurskáldið ástsæla Tómas Guðmundsson (1901-1983). og ólst þar upp. Honum var reist brjóstmynd í borginni árið 1976.

Bænahús að Efri Brú var reist í katólskum sið. Í Jarðabók Árna Magnússonnar og Páls Vidalín ritaðri árið 1708 segir að heimilisfólk á staðnum hafi fengið sakramenti þar svo lengi sem menn muni. Árið 2001 reisti Guðmundur Böðvarsson bóndi að Efri Brú, nýtt bænahús á staðnum. Byggt á sömu teikningum og Þjóðhildarkirkja á Grænlandi og Bænahúsið að Stöng í Þjórsárdal. Þrátt fyrir smæðina (6 m2) hefur Bænahúsið að Efri Brú fallið vel til hinna ýmsu kirkjulegu athafna.

Bænhúsið að Efri-Brú í Grímsnesi er líklega minnsta hús í umsjón Fasteigna ríkissjóðs. Böðvar Guðmundsson, fyrrum bóndi, byggði það eftir fyrirmynd sams konar húss, sem var á þessum stað á 15. öld.
Bænhúsið að Efri-Brú í Grímsnesi er líklega minnsta hús í umsjón Fasteigna ríkissjóðs.  Böðvar Guðmundsson, fyrrum bóndi, byggði það eftir fyrirmynd sams konar húss, sem var á þessum stað á 14. öld.

 

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Suðurland
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Álfaskeið Álftaver Almenningar Alviðra Arnarbæli Áshildarmýri Ásólf…
Torfbæir og torfkirkjur
Nokkrir torfbæir á landinu Íslenski torfbærinn á sér sögu sem einstæð er í heiminum og er ekki rannsökuð til fulls. Torfbærinn er í raun þyrping húsa…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )