Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Breiðavik á Víknaslóð

Borgarfjörður Eystri

Samkvæmt Landnámu nam Þórir Lína land í Breiðuvík. Stóraá (Víkurá) á ósa á breiðri sandströnd fyrir  víkurinnar. Áin er að mestu leyti mörkin milli jarðanna Breiðuvíkur og Litlu-Víkur sunnan ár. Síðar nefndi bærinn fór í eyði 1945. Breiðuvíkurbærinn stóð skammt frá sjó norðan árinnar. Þar var löngum tvíbýli en bærinn fór í eyði 1947. Þar var mikið landrými en lendingarskilyrði voru slæm. Víkin er velgróin og litskrúðug ríólítfjöllin eru fögur ásýndar.

Þar reistu landeigendur og Slysavarnarsveitin Sveitungi á Borgarfirði byggðu þar neyðarskýli á níunda áratugnum og sumarið 1998 byggð Ferðafélag Fljótsdalshéraðs þar 33 manna skála.

Myndasafn

Í grennd

Borgarfjörður eystra
Borgarfjörður eystra er nyrstur fjarða, sem ganga inn í Austfjarðahálendið. Borgarfjörður liggur á mótum blágrýtissvæðis og líparítsvæðis og má þar fi…
Sögustaðir Austurlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landsins Aðalból Álfaborg Álfatrú Álftafjörður Ás í Fellum Ás í Fellum Áskirkja …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )