Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Breiðabólsstaðarkirkja

Breiðabólsstaðarkirkja er í Breiðabólsstaðarprestakalli í Rangárvallaprófastsdæmi. Hún var byggð 1911- 1912 í neðanverðri Fljótshlíð. Katólskar kirkjur þar voru helgaðar Maríu guðsmóður. Útkirkja er á Hlíðarenda.

Breiðabólstaður var talinn eitt bezta brauð landsins fyrrum og sagt, að þaðan hafi enginn prestur farið nema til að verða biskup. Dæmi þess eru mörg, s.s. Jón Ögmundsson (1052-1121), sem varð fyrsti biskupinn á Hólum árið 1106. Ögmundur Pálsson varð ábóti í Viðey áður en hann varð síðasti katólski biskupinn í Skálholti.

Myndasafn

Í grennd

Kirkjur á Suðurlandi
Listi yfir flestar kirkjur landshlutans Akureyjarkirkja Árbæjarkirkja Ásólfsskálakirkja Ásólfsskáli Bræðratungukirkja …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )