Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Bólstaður í Álftafirði á Snæfellsnesi

Bólstaður í Álftafirði á Snæfellsnesi hefur ekki verið í byggð síðan á söguöld.

Eyrbyggja segir frá Arnkatli Þólólfssyni goða, sem þar bjó. Hann var manna sterkastur,   vel að sér í lögum og sá margt fyrir. Arnkell var drengur góður og hvers manns hugljúfi, en honum tókst að ósættast við Snorra goða að Helgafelli, slægasta og heiftræknasta manns sins tíma. Snorri réðist á Arnkel við 15. mann hjá Örlygsstöðum, innst í Álftafirði, og þar féll hann eftir frækilega vörn. Haugur hans mun hafa eyðzt af sjávargangi. Nokkrar rústir hafa varðveitzt að Bólstað.

Þar lét Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður, grafa 1931 og fannst þar skáli með langeldastæðum. Þessar rústir munu vera meðal elztu byggðaminja landsins, því bærinn fór í eyði í kringum árið 1000. Hjá Bólstað er kletturinn Þórólfshöfði. Þar brenndi Arnkell bæ föður sins, Þórólfs bægifótar, þegar afturganga hans var orðin óbærileg. Eyrbyggja nefnir höfðann Bægifótarhöfða.

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Vesturlandi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Borgarfjörður Snæfellsnes Dalir Landshlutar Ferðavísir…
Stykkishólmur
Stykkishólmur er oft kallaður höfuðstaður Snæfellsness. Bærinn stendur á innanverðu Snæfellsnesi, yzt á Þórsnesi. Byggðin stendur á klettaborgum með f…
Vesturland Snæfellsnes kort
Kort af Snæfellsnesi á Vesturlandi Kort af Snæfellsnesi á Vesturlandi  …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )