Þessi vötn eru bæði í Sauðaneshreppi í N-Þingeyjarsýslu. Bjarnarvatn er 0,12 km² og í 36 m hæð yfir sjó. Mávsvatn er 0,2 km² og í 18 m hæð yfir sjó.
Bæði vötnin eru talin grunn. Hægt er að skrönglast á jeppum til þessara vatna. Sæmilegt að Skoruvík og er þá stutt að Mávsvatni. Í vötnunum er bleikja og urriði, allgóður fiskur. Urriðinn gerur orðið allstór í Mávsvatni. Fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Netaveiði var stunduð í vötnunum áður.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 660 km og 38 frá Þórshöfn.