Bildudalskirkja er í Bíldudalsprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi. Bíldudalur er kauptún við Bíldudalsvog að vestan. Kirkja hefur verið í Bíldudal frá 1906, þegar hún var flutt þangað frá Otradal, og þar hefur setið prestur þar til á síðustu árum.
Meðal fornra gripa í kirkjunni eru skírnarsár, tvær altaristöflur, kaleikur og patina úr silfri. Þórarinn B. Þorláksson, listmálari, málaði aðra töfluna, sem sýnir Maríu við gröf Krists, sem sagði þá: „Kona, því grætur þú?” Hin taflan er af kvöldmáltíðinni frá 1737. Á predikunarstólnum, sem er frá 1699 eru myndir af Kiristi og postulunum. Selárdalskirkjur tilheyra prestakallinu.